A really splendid little blog, as entertainng as it is instructive



18.8.06
Spjall og matur

1. Hvet alla til að kokka kjúklingatortillur að hætti Adda. Uppskriftin birtist í Fréttablaðinu í dag.

2. Hvet alla til að koma á Thorvaldsen á morgun (milli 17 og 18 eða 22 og 23) og spjalla við Adda um sýninguna hans eða eitthvað sem ykkur dettur í hug.

3. Hvet alla til að njóta menningarnætur.

4.


Posted at 18:31 by karljohann
3 orð  

14.8.06
Vanagangur?

Nú fer lífið að ganga einhvern vanagang, sem ég veit reyndar ekki enn hvernig verður. Því fylgir að vakna kl. 7, búa til verkefni, fara yfir verkefni, kenna, búa til nesti og líklega að taka sig á og drífa sig aftur í Tae Kwon Do.

En fyrst þarf ég að undirbúa Sögu 103 áfangann og samfélagsfræðina fyrir 10. bekk að ógleymdu því að búa til 2 stk. valáfanga fyrir 9. og 10. bekk. Skólasetning er 22. ágúst - á mánudaginn, svo það þarf sennilega að grípa til róttækra ráða: TO THE BATMOBILE!

 

Að lokum legg ég til að fólk drífi sig á sýninguna Support your local painter sem stendur nú yfir á Thorvaldsen bar.


Posted at 19:33 by karljohann
Hvað finnst þér?  

11.8.06
Support your local painter

Þér og þínum er boðið á opnun sýningarinnar Support your local painter laugardaginn 12. ágúst á Thorvaldsen bar (Austurstræti 8-10) kl. 17-19.

Sýningin stendur yfir frá 12. ágúst til 8. september.


Posted at 12:15 by karljohann
1 orð  

27.7.06
If you see me walking down the street

Það fór einhver inn í húsið mitt, rændi þar og ruplaði og skildi allt eftir í rusli. Gaman. Vissulega stór bót í máli að þetta var bara í sameigninni en ekki í íbúðinni. Reyndar var ég með fullt af þvotti á snúrunni og hvarf hann að mestu. If you want details þá var fötunum mínum stolið en tuskur og handklæði skilin eftir.

Þannig að ef þú sérð mig ganga um göturnar þá gæti það verið einhver róni í fötunum mínum. Vinsamlegast gerið þá eitthvað sniðugt.

Að lokum legg ég til að allir styðji sinn hverfislistamann.


Posted at 18:42 by karljohann
3 orð  

26.7.06
Á daga mína hefur drifið...

Ég fór í leikhús í gærkvöldi, það var fínt. Ætli maður fari nú að stunda þetta? Drífi sig þá í Landnámssetrið að sjá Mr. Skallagrímssonog fari aftur í Sjóminjasafnið og sjái þar Penetraitor? Aldrei að vita hvað verður. Að minnsta kosti er alltaf hollt og gott að fara í leikhús.

Annars eru álagningarseðlar komnir í netheima. Gleði gleði.

Að lokum legg ég til að allir styði sinn hverfislistamann.


Posted at 11:29 by karljohann
Hvað finnst þér?  

21.7.06
Fast Food Nation

Á síðustu dögum hefur margt drifið á daga mína. Meðal annars Devito's (þrisvar) og Nonnabátar (þrisvar). Þar stuttu á undan var ég svo búinn að fara á Thai matstofuna eins og áður er komið fram en sá staður átti nú ekkert heima undir merkjum INTR. Spurning hvort ég komi upp skyndibitagagnrýni líka? Reyndar er ég ákaflega vanafastur í þeim efnum og fer helst á Devito´s eða Nonna enda bæði eðal staðir sem ekki er hægt að kvarta yfir. Nema þá yfir því hvað aukaálegg er dýrt á báðum stöðum - það er beinlínis okur að rukka 30 kr fyrir nokkrar lengjur af lauk ofan á samloku og sömuleiðis að krefja fólk um 200 kr fyrir lauk eða ólívur á 16 tommu pizzu.

Útiát þetta orsakast nú mest af því að ég er búinn að vera að mála íbúðina og hef því ekki verið að elda innan um gufurnar hér inni. Nú er allt orðið fínt, kominn nýr sófi og nýjar hillur verða settar upp á næstu vikum.

Að lokum legg ég til að fólk styðji sinn lókal listamann.


Posted at 23:20 by karljohann
Hvað finnst þér?  

17.7.06
Syd Barrett: Bob Dylan blues

"Song originally written by Syd as a teen during the height of Bob Dylan mania in Europe (pre-Pink Floyd).

During the recording of one of his solo albums (post-Pink Floyd), Syd was reminded of this track by producer David Gilmour & encouraged to record it. That tape stayed in Gilmours possession for 30+ years until released in 2001. In "Bob Dylan Blues", Syd not only composes a song poking fun at all of the Bob Dylan hype, but manages to do it in Bob Dylan's own walking blues style! "

Sjá video.


Posted at 12:23 by karljohann
Hvað finnst þér?  

14.7.06
INTR: Vín & skel, Laugavegi

Vín og skel er lítill franskur sjávarréttastaður í bakhúsi við Laugaveginn, gengið er inn í port rétt hjá Bónus. Í portinu er örugglega rosalega fínt að borða í góðu veðri en þar sem slíkt er sjaldgæft nú til dags þá var haldið á efri hæð staðarins. Reyndar er í portinu stór og ljót mynd sem máluð var um síðustu helgi. Staðurinn er lítill og huggulegur og er létt frönsk harmonikkutónlist í bakgrunninum. Réttir dagsins eru listaðir á töflu og þar sem hér var um hádegisverð að ræða þá var blátt blað með hádegisréttum og -verðum ásamt litlum vínlista á standi á borðinu. Hádegisverðin voru greinilega allt önnur en á kvöldin, t.d. var fiskur dagisns á 1690 í hádeginu en 2570 á kvöldin. Vínverð er eins og gengur og gerist allt of hátt en það er ekki breytilegt eftir tíma dagsins.

Þjónusta var fumlaus og ágæt en ekkert áberandi fagmannleg eða frábær. Kræklingur í hvítvínssósu varð fyrir valinu og bragðaðist nokkuð vel en engin flugeldasýning þó á ferð. Vín húsins var gott með matnum en hafði einkennilegt eftirbragð í fyrsta sopa. Skelfisksúpan var nokkuð góð, ég hefði amk verið stoltur af því að bera hana fram. Reyndar hefði ég ekki haft hana svona þykka, þetta minnti á graut ekki síður en súpu. Maturinn var borinn fram í litlum pottum sem var svo ausið úr eftir smekk. Sniðugt og þessir mini pottar voru líka flottir. Að lokum má benda starfsfólkinu á að cocktail er með "k" í miðjunni, að kampavín ætti ekki að nefna "Bubbly" á ensku (það vísar frekar til ódýrari freyðivína) og að almennt má lesa yfir allan texta á matseðli betur.

Hér með hefst stjörnugjöf og örumsögn INTR. Fimm stjörnur eru í boði og ekki er sjálfgefið að staður fái yfirhöfuð stjörnu.

Vín og skel er ágætur staður en stendur ekki undir kvöldverðlagi sínu. Tvær stjörnur.


Posted at 16:29 by karljohann
Hvað finnst þér?  

13.7.06
INTR: Thai Matstofan Faxafeni

Leitin hófst á fábrotnum stað í einu af bláu húsunum í Faxafeni. Þarna hafa safnast saman ýmsir matsölustaðir: McD, Cesar, Subways, Hrói, Ísbúð, mexikóskt e-ð og svo er ekki langt í Dominos, BK kjúkling og fleira. En sem sagt ég og Oddur sneiddum hjá öllu þessu og tylltum okkur á barstóla á Thai matstofunni. Þar var hádegistilboð: blanda af fjórum réttum í borði ásamt hrísgrjónum á 800 kr. Ég tók eitt slíkt en litli bróðir tók kjúkling í karrí. Þarna var ég s.s. með kjúkling í karrí, nautakjöt í ostrusósu, svínakjötsnúðlur og djúpsteiktar rækjur með karrí sósu.

Maturinn var borinn fram á frauðplastbökkum en við fengum þó stálhnífapör (tók ekki eftir prjónum en þeir hljóta þó að hafa verið þarna). Djúpsteiktar rækjur eru auðvitað ekkert lostæti en ég læt mig hafa það að borða þær þar sem allt hitt fylgdi með. Og þannig losnaði ég við valkvíða. Það var gott bragð af öllu, reyndar sérstaklega karríinu. Hinsvegar var sumt hráefnið ofeldað og það var ekki bara því að kenna að maturinn var allur fenginn úr hitaborði. Svo fékk ég smá brjósk í einum kjúklingabitanum, það var ekki gott.
Konungur Tælands vakti þó yfir okkur og veitti það nokkra huggun þegar ég spýtti brjóskinu út úr mér. Umlits var staðurinn á réttum stað í bænum: umhverfis- og skipulagsslysinu sem kallast Skeifan og Faxafen.
Stóran plús fær staðurinn hins vegar fyrir skammtastærðirnar. Eins og matnum var útbýtt þarna þá hefði í raun einn skammtur verið nóg fyrir okkur tvo. Ég gat ekki klárað matinn minn.

Stop to think about that.

Ég gat ekki klárað matinn minn. Ég. Þannig að þarna má ná sér í ódýran bita fyrir tvo. Maturinn er svona la la, ágætur í ýmsa staði en frekar slappur á öðrum sviðum. Miklu betra en Nings en ekkert til að hrópa húrra fyrir.

My neverending quest continues.


Posted at 23:14 by karljohann
2 orð  

12.7.06
Superman

Superman væri örugglega búinn að mála alla íbúðina mína fyrir löngu ef hann væri ekki upptekinn í promókynningum vegna nýrrar myndir. Þannig að ég mála bara í rólegheitunum. Ekki mjög pró vinnubrögð en það kemur vonandi ekki að sök.

Annars bara fullt að gerast, spyrjið bara þegar þið hittið mig því ég er latur við að skrifa núna.


Posted at 13:59 by karljohann
Hvað finnst þér?  

Next Page


<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed